|
Áhugavert efni á TeachersTV |
|
mánudagur, 12 janúar 2009 |
|
Ég lít reglulega við á breska kennarasjónvarpinu. Þetta er meðal annars það sem ég hef rekist á að undanförnu. Hvetjandi umhverfi í leikskólum. Þarna er áhugavert efni frá leikskóla í Leeds Enabling environment Sem minnir mig á að skýrsla Fannýar Umhverfið sem þriðji kennarinn er komin á Netið. Jákvæð samskipti Myndband sem gert var í Oakwood Primary í Leeds. Mjög áhugavert myndband Positive Relationships Vinna, vinna vinna....kannast einhver við þetta. Sophia Mahmood er kennari sem leggur mikinn metnað í starfið, en það er farið að taka sinn toll. Áhugavert myndband fyrir marga kennara. My Planning Rules My Life Vikan12 - 19. janúar er helguð upplýsingatækni í skólastarfi og verður án vafa gaman að fylgjast með kennarasjónvarpinu þessa viku. BETT verður um næstu helgi og er sjónvarpað beint frá sýningunni. Ég hef farið á BETT s.l. þrjú ár, en ekki þetta árið. Ég hef yfirleitt fjallað um það helsta sem ég hef séð og heyrt á sýningunni. Ætli ég skoði ekki bara sýninguna rafrænt þetta árið og fjalli um það sem mér finnst áhugavert svona úr fjarlægð. |
|
|
Hvernig nýti ég Wikisíður |
|
mánudagur, 17 nóvember 2008 |
|
Wiki hvað er það? Wiki er opinn hugbúnaður öllum aðgengilegur og ókeypis. Wiki hentar einstaklega vel til geymslu kennsluefnis ýmis konar og hentar því vel kennurum og öðrum þeim sem miðla vilja efni á einfaldan og ódýran hátt.
Ráðstefnuvefir. Þegar skipuleggja á ráðstefnur er mjög einfalt og aðgengilegt að nýta sér Wikivefi. Það er með mjög einföldum hætti hægt að gera vefsíðu sem heldur utan um allt það efni sem viðkemur ráðstefnunni. Helsti kosturinn er síðan sá að ekki er þörf á að taka vefsíðuna af Netinu vegna kostnaðar vegna hýsingar, heldur getur hún lifað áfram og verið heimild um það sem liðið er t.d. hjá félagasamtökum eða skólum. Hér eru dæmi um ráðstefnu síður sem 3f hefur staðið að síðustu ár. Vörður vísa veginn Ráðstefna 3f og HR um fjarkennslu Kennsluvefir Ég hef í starfi mínu notað Wiki vefi til þess að birta ýmislegt efni sem ekki endilega þarf að vera á heimasíðu leikskólans. Efni sem hægt er þá að vísa til. Einnig hef ég verið þátttakandi í eTwinning verkefnum og hef þá hvat samstarfskennara mína í Evrópu til þess að nýta Wiki í námi og kennslu. Slíkt hefur oft leitt af sé að kennarar fara að prófa sig áfram í opnum hugbúnaði og haft jafn gaman af og ég. Hér eru dæmi um vefi sem ég hef gert í Wiki og tengjast vinnu minni. 1,2,Buckle my shoe Leikskólinn Furugrund- hliðarsíða Kistan- safn síða um efni sem tegnist sérkennslu Efni á íslensku um Wiki Salvör Gissurardóttir og Fjalar Jónsson hafa verið ötul við að kynna fyrir kennurum og öðrum áhugasömum notkunarmöguleika Wiki vefja og alfræðivefninn Wikipedia. Hér má finna ágætan kennsluvef sem Salvör hefur gert um Wikispaces og Wetpaint. |
|
|
mánudagur, 17 nóvember 2008 |
|
Þar kom að því að ég fann leið til þess að prófa Voice Tread. Ég hef í eitt ár verið í evrópsku samstarfi með kennara í Póllandi, henni Ewu , sem er tilbúin að prófa helst allt sem hægt er að gera á Netinu. Við höfum unnið saman ásamt fjölmörgum öðrum kennurum í stærðfræðiverkefnunu 1,2, Buckle my shoe og eingöngu notast við opinn hugbúnað eins og Wiki, Moodle og og fl. Verkefnið sem við byrjuðum á í síðustu viku er að láta börn í öllum leikskólunum í verkefninu segja nöfnin á tölustöfum og grunnformum inn á Voice Tread. Þetta finnst krökkunum mjög spennandi og verður gaman að hlusta á þegar allir leikskólarnir hafa tekið þátt.  |
|
|
Bresk börn fá ókeypis heimatölvu |
|
föstudagur, 24 október 2008 |
BBC segir frá því á vef sínum að í bígerð sé að koma því svo fyrir í Bretlandi að öll börn 7 til 18 ára hafi aðgang að heimatölvu. Foreldrar með litla innkomu þurfa því ekki að óttast að börnin þeirra sitji efitir og eigi ekki sömu tækifæri og önnur börn á námi með aðstoð upplýsingatækninnar. Byrjað verður að vinna að verkefninu næsta haust (2009) og áætlað að öll börn verði komin með tölvu heima hjá sér á um tveimur árum. Mér finnst þetta mjög til fyrirmyndar og væri óskandi að íslensk stjórnvöld fari að huga að þessum þætti, sérstaklega í ljósi versnandi efnahags heimilanna. Það má enginn sitja efir og eiga takmaraðri möguleika í framtíðinni vegna fátæktar foreldra. |
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 10 - 18 af 42 |