Atburðir

Það eru engir atburðir skráðir

Dagatal

september 2010
sunmánþrimiðfimföslau
01020304
05060708091011
12131415161718
19202122232425
2627282930

Áskrift

Forrit fyrir leikskóla
mánudagur, 21 maí 2007

Ég er oft spurð að því hvaða forrit ég geti mælt með fyrir leikskólabörn.

Hér eru nokkur sem ég get mælt með og hægt er með auðveldum hætti að kaupa á Veraldarvefnum eða í Skólavörubúðinni.

Tizzy’s First Tools

Numeracy Activity Builder 

2Create A Story 

Maths City 1 

Infant Video Toolkit 2

Music Toolkit

Photo Simple

Bogi blýantur

Doppa bregður á leik

Stærðfræðisnillingar

Táknmálsleikir

Gagnvirkir leikir á Veraldarvefnum sem ég get mælt með er að finna hér.

Svo eru hér á heimasíðunni einnig krækjur á fyrirtæki sem selja forrit og kennsluefni fyrir börn.


 
Wiki í námi og kennslu
miðvikudagur, 15 ágúst 2007

Nýlega fór ég á námskeið á vegum 3.f - Félag um upplýsingatækni og menntun. Kennari var Salvör Gissurardóttir. Á námskeiðinu var kennt að nýta Wiki fjölfræðiorðabókina og skylda vefi í kennslu. Mér fannst allt sem kennt var einstaklega áhugavert og er viss um að ég á eftir að nýta mér eitthvað af því sem fram fór. Kennt verður áfram í fjarkennslu fram í nóvember svo ég ætla að reyna að vera dugleg að æfa mig á meðan aðstoðar nýtur við.

Nánar...
 
Áhugavert lesefni
mánudagur, 09 júlí 2007

Í sumarfríi er upplagt að hafa eitthvað almennilegt að lesa. Sér í lagi ef maður liggur í sólbaði, en líka ef maður vill hafa eitthvað gott til þess að sofna út frá.

Nýlega fékk ég sendar upplýsingar um nýjar greinar á Netlu. Hafið ekki tíma til þess að líta á þær þá, en núna þegar fríið er byrjað er nógur tími. Það eru einkum tvær nýlegar greinar sem ég við benda á.

Grein S.Fjalars um Opnar lausnir. Frumherjar kallar Fjalar grein sína og er þessi grein sú fyrsta af þremur sem hann ætlar að birta um opnar lausnir. Ég er langt komin með að lesa greinina og get mælt með henni.

Svo er það grein eftir Guðlaugu Erlu og Magna um uppeldi til ábyrgðar. Ég hef áður lesið efni eftir Guðlaugu og fundist það áhugavert. Greinin er áhugaverð, ekki hvað síst vegna þess að ég dáist alltaf af fólki sem nennir að skrifa um hluti sem við erum að vinna við alla daga.

 
Hittingur tölvu- og upplýsingatækni leikskólakennara
fimmtudagur, 28 júní 2007
Miðvikudaginn 5.september n.k. kl. 17 ætla leikskólakennarar sem lokið hafa framhaldsnámi í tölvu- og upplýsingatækni að hittast í kaffihúsi Perlunnar. Vonandi að allir geti tekið þetta síðdegi frá í tíma.

Umræðu efnið gæti verið:

1. Staðan í tölvumálum leikskóla, hvað er jákvætt í gangi hjá sveitarfélögunum.

2. Stöður umsjónarmanna í upplýsingatækni í leikskólum? Grunnskólarnir eru komnir með þessar stöður af hverju ekki leikskólanir?

3. Þróunarverkefni í tölvu- og upplýsingatækni hvað er að gerast í þeim málum?

4. Möguleikar á styrkjum til þess að efla tölvu- og upplýsingatækni í leikskólum.

5. Annað sem þið hafið áhuga á að ræða.

 

Það verður gaman að hittast, við erum mjög dreifðar og því miður hefur verið allt of lítið samband á milli okkar eftir að við útskrifuðumst.

Hlakka til að sjá ykkur.

 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 37 - 42 af 42