Atburðir

Það eru engir atburðir skráðir

Dagatal

september 2010
sunmánþrimiðfimföslau
01020304
05060708091011
12131415161718
19202122232425
2627282930

Áskrift

Stofnfundur rannsóknarstofu um skóla án aðgreiningar
þriðjudagur, 27 maí 2008

Þann 2. júní næstkomandi kl. 16.00 verður stofnuð rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar í Kenn­araháskóla Íslands, Skriðu, fyrirlestrarsal skólans.

Hlutverk rannsóknarstofunnar er að efla rannsóknir og þróunarstarf á sviði skóla án aðgreiningar, miðla þekkingu, læra af vettvangi, veita ráðgjöf, efla innlend og erlend tengsl og taka þátt í alþjóðlegri þekk­ingar­sköpun. Einnig mun rannsóknarstofan standa fyrir málþingum og stuðla að útgáfu fræðilegs efnis.

Nánar...
 
Closing The Gap
þriðjudagur, 20 maí 2008
Hópur leikskólakennara, leikskólasérkennara og þroskaþjálfa ætla að drífa sig á Closing The Gap ráðstefnuna sem kynnt var hér á heimasíðunni. Til upplýsingar fyrir þá sem hafa áhuga birti ég  hér upplýsingar um ráðstefnuna og ferðaupplýsingar á íslensku.
Nánar...
 
Kynning á Closing The Gap
fimmtudagur, 17 apríl 2008
 
Krækjum hefur fjölgað
þriðjudagur, 15 apríl 2008

Ég hef aðeins gefið mér tíma til að fjölga krækjum hér á heimasíðunni. Núna er ég búin að fjölga krækum í flokkunum Sýningar og ráðstefnur og setja inn nýjan flokk sem ég kalla Ýmis samtök innlend og erlend.  Flest þessara samtaka standa fyrir Alþjóðlegum málþingum og ráðstefnum.
Ég var einmitt að skoða heimasíðu Closing The Gap. Mikið rosalega langar mig að fara á þessa ráðstefnu. Hún verður haldin á Sheraton Bloomington Hotelinu í  Minneapolis. Ég prufaði að skoða hvað kostar flug með Icelandair og það er um 50.000 kr. Það væri örugglega líka hægt að bíða eftir hausttilboðum frá þeim og skella sér í eins og viku ferð og versla í leiðinni.
Bresku sýningarnar eru líka mjög skemmtilegar og auðvelt að fara á þær því það er flogið til London oft á dag. Ég fór einmitt í september 2006 á Early Years and Primary Teaching það er góð sýning á kennslugögnum fyrir leikskóla og svo eru líka ágætir fyrirlestrar á sýningunni. Næsta sýning í London verður í lok september á þessu ári.

Nánar...
 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 19 - 27 af 42