Atburðir

Það eru engir atburðir skráðir

Dagatal

september 2010
sunmánþrimiðfimföslau
01020304
05060708091011
12131415161718
19202122232425
2627282930

Áskrift

Skapandi afl í leikskóla, Rauði þráðurinn í starfinu
sunnudagur, 27 september 2009

Faghópur leikskólasérkennara og Faghópur listgreinakennara í leikskólum halda saman námstefnuna

Skapandi afl í leikskóla, rauði þráðurinn í starfinu.

Námstefnan verður haldin í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 19. nóvember kl. 13:00 til 16:00.

Sjá nánar á heimasíðu námsstefnunnar.

 
BETT 2010
sunnudagur, 27 september 2009

BETT tölvu- og hugbúnaðarsýningin verður haldin í London dagana 13. - 16. janúar 2010 og eins og áður hafa Nýherji og Úrval-Útsýn skipulagt ferð á þessa áhugaverðu sýningu.

Bett er stærsta upplýsingatæknisýning heims, sem um 30 þúsund manns sækja árlega. Sýningin tekur fyrir það helsta í upplýsingatækni í skólastarfi og hentar öllum skólastigum.

Fyrir utan það gefur staðsetningin - London - sýningunni lit með endalausum afþreyingarmöguleikum. Leikhús, markaðir, byggingar, söfn, verslanir, krár, spennandi matsölustaðir, fótboltaleikir svo eitthvað sé nefnt af því sem heillar. Það er eitthvað sem ekki er afgreitt á einum degi. Farþegar í ferðinni munu fá ítarlegar upplýsingar um hvað er í boði á þessum tíma í London.
Kynnið ykkur málið á heimasíðu Úrval Útsýnar. 

 
Aðalfundur 3f var síðdegis í gær
fimmtudagur, 28 maí 2009
Aðalfundur 3f var haldinn 27. maí í Borgarholtsskóla. Fundurinn var fámennur en góður engu að síður. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf en síðan kynntu Ólafur Sigurðsson skólameistari og Ari Halldórsson, kennslustjóri lista- og fjölmiðlasviðs starfsemi skólans.

Litlar breytingar urðu á stjórn félagsins. Sólveig Friðriksdóttir (formaður), Fjóla Þorvaldsdóttir, Elín Jóna Traustadóttir og Jóhanna Geirsdóttir sitja áfram í stjórn. Björn Sigurðsson hætti en Sigurður Fjalar Jónsson kennari í FB m.m. var kosinn í hans stað.

Sjá skýrslu formanns um starf félagsins síðasta árið.

 
The Scottish Learning Festival
sunnudagur, 05 apríl 2009
The Scottish Learning Festival verður haldin í 23-24 september í ár í Glasgow. Dagskráin hefur ekki enn verið birt í heild á heimasíðunni.  Það hefur verið staðfest að Prófessor Carlina Rinaldi  sem helst er þekk fyrir að vera aðalsérfræðingur í Reggio Emilia stefnunni mun vera meðal aðalfyrirlesara. Að sögn Skota sem ég er í sambandi við eru kennarar þar í landi mjög spennir fyrir því að heyra hennar fyrirlestur. Andreas Schleicher kennslufræðingur hjá OECD mun einnig verða einn af aðalfyrirlesurum og svo hefur verið gengið frá því að frá Ástralíu komi Graham Maxwell sem er sérfræðingur í hvers kyns mati á skólastarfi muni fjalla um það efni á hátíðinni. Hann er prófessor við Háskólann í Queensland í Ástralíu.
Ég held það sé óhætt að hvetja íslenska kennara til þess að skoða þann möguleika að heimsækja hátíðna. Stutt og einfalt að fara til Glasgow.
 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 9 af 42