|
Námskeiðsdagur Faghópsins föstudaginn 27. febrúar s.l. var einstaklega vel heppnaður. Blandað var saman fræðslu og skemmtun allan daginn. Það var stjórn Faghópsins og Ingibjörg B Hilmarsdóttir sérkennslufulltrúi í Reykjanesbæ sem sáu um undirbúning dagsins. Var þeim vel fagnað í lok dags eftir einstaklega ánægjulega dvöl á Suðurnesjum. 
Fyrst var Fræðasetrið í Sandgerði heimsótt. Þar sagði Reynir Sveinsson frá því helsta sem í boði er í setrinu.  Þá var farið í leikskólann Sólborg í Sandgerði, þar sem Hanna Gerður Guðmundsdóttir kynnti starf skólans. Í hádeginu var farið í Flösina á Garðskaga til þess að snæða hádegisverð og þaðan haldið sem leið lá í Reykjanesbæ.
Í leikskólanum Heiðarsel í Reykjanesbæ tók Kolbrún Sigurðardóttir á móti okkur og sagði frá sögu skólans.
 Börnin í leikskólanum sungu fyrir okkur undir stjórn Maríu leik- og tónlistarkennara.
 Ólöf K Guðmundsdóttir sérkennslustjóri og María Guðmundsdóttir leik- og tónlistarkennari sögðu okkur frá kennsluaðferðum með einhverfum börnum í skólanum.
Þá var haldið í leikskólann Tjarnarsel í Reykjanesbæ. Þar fengum við að vera viðstaddar valstund barnanna sem fram fór á táknmáli. Brynja Brynleifsdóttir þroskaþjálfanemi fræddi okkur um táknmálskennslu og Inga María Ingvarsdóttir skólastjóri og Ragnhildur Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri sögðu frá lestrarkennslu í skólanum.
Frá Tjarnarseli var haldið í Listasafnið í Reykjanesbæ og hlítt á erindi Gyðu M Arnmundsdóttur um greiningartækið LOGOS.
Það sem eftir var síðdeginu var síðan eytt í að skoða menningartengda starfsemi í Grófinni. Kertagerðina Jöklaljós, Poppminjasafnið, Sigguhelli og Glerverkstæðið. Kvöldverður var svo snæddur í Duushúsi og haldið síðan heim á leið eftir velheppnaðan Námskeiðsdag.
En fyrst var Ingibjörgu þakkað fyrir góða skipulagningu og velheppnaðan Námskeiðsdag. Hægt er að skoða fleiri myndir hér. |