Atburðir

Það eru engir atburðir skráðir

Dagatal

september 2010
sunmánþrimiðfimföslau
01020304
05060708091011
12131415161718
19202122232425
2627282930
1.2.Buckle My Shoe fékk RUNNER UP PDF Prenta Senda
Höfundur: Fjola Thorvaldsdottir   
sunnudagur, 01 mars 2009

Verkefnið okkar í Furugrund 1.2. Buckle My Shoe fékk RUNNER UP verðlaunin á eTwinningráðstefnunni í Prag. Verkefnið sem vann var verkefnið um himingeyminn og var samstarf tveggja skóla í Tékklandi og Slóvakíu. Mjög áhugavert verkefni barna í 5. bekk grunnskóla. Við höfum samt sem áður fengið mikil viðbrögð við okkar verkefni og flest allir sýna því mikinn áhuga.
Í verðlaun fengum við stórt og mikið skjal sem við hengjum á vegg leikskólans og svo bók sem er eftir Edward Bono. Afar áhugaverð og fjallar um hvernig á að kenna börnum og fullorðnum að hugsa. Hugsa skapandi hugsun. Bókin heitir Sex hattar.
Hér eru nokkrar myndir frá ráðstefnunni.

1.2. Buckle My Shoe by you.
Básinn okkar þar sem við kynntum verkefnið. Það voru fjölmargir sem gerðu sér ferð til þess að kynna sér verkefnið.

1.2.Buckle My Shoe gengið by you.
Hér er mynd af þeim í hópnum sem vann að verkefninu og voru staddar í Prag.
F.v. Fjóla, Ewa (Pólland), Patrisia (Ítalía), Miriam (Malta), Anna Maria (Ítalía), Jurate (Rúmenia) og Dorothy (UK).

Picture 043 by you.
Verðalunin afhent

Fjóla með viðurkenninguna by you.
Ég og skjalið

 
< Fyrri   Næst >