Atburðir

Það eru engir atburðir skráðir

Dagatal

september 2010
sunmánþrimiðfimföslau
01020304
05060708091011
12131415161718
19202122232425
2627282930
Hvað heyrði ég á BETT PDF Prenta Senda
Höfundur: Fjola Thorvaldsdottir   
laugardagur, 19 janúar 2008

Að vanda fór ég á nokkra fyrirlesra og kynningar  á BETT. Gæðin og notagildi fyrir mig sem kennara voru misjöfn eins og gengur.  Það eru einkum tvö erindi sem ég vil gera skil.

 Roger Distill
Hið fyrra er erindi Roger Distill, Grumpy Old Teacher, eins og hann kýs að kalla sig sjálfur.
Roger þessi er tölvukennari í Gagnfræðiskóla í Hertfordshire í Englandi. Hann sagðist hafa s.l. tvö ár algerlega verið heillaður af möguleikum Web 2.0 og þeim möguleikum sem Opinn hugbúnaður gefur við kennslu.  Það er ekki ástæða til þess að ég fari að segja frá orði til orðs það sem hann sagði því Roger er trúr hugmyndafræði þeirra sem aðhillast opinn hugbúnað og birti því fyrirlesturinn á persónulegu bloggi sínu. Hann tók einnig mynd af áheyrendum og má sjá mig og Ingibjörgu sitja þarna á öðrum bekk. Hann sagðist gera þetta til þess að monta sig af því að það væri einhver sem vildi hlusta á hann. Þess má geta að það komust færri að en vildu til þess að hlýða á erindi hans. Roger benti á marga möguleika sem ég hafði heyrt af áður, en líka á það að það eru margir sem nota Opinn hugbúnað og vita ekki um alla möguleika sem þeir geta gefið. Það á svo sannarlega við um mig, því ekki vissi ég um alla möguleikana sem Google bíður upp á og þá ekki Blogger. Nú þarf maður að fara að leggjast yfir þetta og skoða betur.
Margt af þeim möguleikum sem hann benti á sé ég að hægt er að nýta í leikskólastarfi. Ég var t.d. mjög hrifin af bubbl.us sem er gerð hugarkorta á netinu.  Splashup.com sem er einskonar Photoshop á netinu. Gaman að leyfa ungum börnum að vinna með ljósmyndir,  teikna og fleira.  Toondoo.com forrit þar sem börn geta með auðveldum hætti búið til teiknimyndir. Bæði skrifað texta og talað inná myndasöguna.

Linda Doyle
Trust and Foundations Schools – What, how and Why?  Heitir seinna erindið sem ég vil minnast á . Þarna sagði Linda frá verkefni sem breska Menntamálaráðuneytið kom af stað og miðar að því að auka samvinnu ýmissa stofnanna í samfélaginu. Við það að ganga í samtökin og komast í samvinnu við aðrar stofnanir fá skólarnir líka ákveðinn gæðastimpill sem er mjög eftirsóttur. Um er að ræða að einkaskóla sem þurfa að markaðssetja sig og telja því hag í því að hafa gæðastimpill. Hún sýndi fram á nokkur dæmi þar sem í samstarfi voru leik- og grunnskóli, bókasafn, elliheimili, listasafn, byggðasafn og íþróttamiðstöð. Haldnir eru reglulega fundir með forsvarsmönnum þessara stofnanna og leitað eftir samstarfsflötum. Virkaði mjög vel að því er viðrist og get ég alveg séð fyrir mér að þessi hugmynd geti gengið í bæjarfélögum hér á landi. Þ.e.a.s. ef þess konar samstarf er þá ekki hafið nú þegar.

Hér má svo sjá myndir sem teknar voru í ferðinni.

Síðast uppfærð ( sunnudagur, 20 janúar 2008 )
 
< Fyrri   Næst >