Atburðir
Það eru engir atburðir skráðir| Hvað sá ég á BETT |
|
|
|
| Höfundur: Fjola Thorvaldsdottir | |
| laugardagur, 19 janúar 2008 | |
|
Dagana 9. til 13. janúar var hin árlega BETT sýning haldin í London. Þar var sem fyrr að finna allt sem viðkemur upplýsingatækni og menntun á öllum skólastigum. Ég slóst í hóp með um eitthundrað og sextíu manns á vegum Úrval Útsýn og Nýherja. Aldrei áður hefur svo fjölmennur hópur frá Íslandi sótt þessa sýningu. Hér á eftir ætla ég að skýra frá því helsta sem vakti áhuga Fyrir marga sem koma í fyrsta sinn á BETT virðist umfangið yfirdrifið, en um leið og fólk nær áttum er það ekki svo erfitt að rata um innviði Það vakti athygli mína þetta árið hvað sérkennslusvæðið hafði minnkað, en í ljós kom að ákvörðun hafði verið tekin um það að dreifa meira um sýningarsvæðið tæknibúnaði sem hentar til sérkennslu. Einnig var eins og undanfarin ár sérsýning á fyrstu hæð Hilton hótelsins í næsta nágrenni. Synergy Learning er alltaf á BETT og mér sýnist sem þeir séu að auka jafnt og þétt við kennslugögn á leikskólastigi. Ég heillaðist af stærðfræðigögnum þeirra og verslaði svolítið af þeim fyrir Furugrundina. Verslaði m.a. tening sem okkur hefur vantað lengi.
ATPaK er fyrirtæki sem ég vissi ekki af. Þetta er fyrirtæki sem selur allskonar stæðrfræði- og vísindaverkefni. Hægt er að versla hjá þeim tilbúin verkefni, en svo er líka hægt að nota vef þeirra sem uppsprettu hugmynda af verkefnum bæði í Clicker og Boardmaker. PRI Liberator býður upp á margar tegundir rofa, talvéla og búnaðar til óhefðbundinna tjáskipta. Hægt er að versla beint á heimasíðunni og er úrvalið ótrúlega mikið hjá þeim.
Fyrirtækið Experia er ég alltaf jafn heilluð af. Þeir eru að selja margskonar búnað til þess að búa til margmiðlunar-skynjunnar umhverfi. Alltaf eru að koma fram nýjungar á því sviði og frá því ég fór fyrst að vinna með slíkt umhverfi hafa bæst við margskonar tölvustýrð forrit til þess að vinna með. Hugsa sér hvað tæknin getur auðveldað kennurum og nemendum lífið . Man þegar við vorum að burðast með stórar óhentugar ljósavélar sem heyrðist svo hátt í að varla heyrðist í tónlistinni sem spiluð var. Nú er þetta allt tilbúið, bara skella í samband og tölvuforrit sér um að búa margmiðlunina til. Sannkölluð veisla fyrir skilningarvitin.
BETT- Verðlaun Til að fræðast meira um það sem var að gerast á BETT er upplagt að horfa á þátt á TeachersTV. |
|
| Síðast uppfærð ( mánudagur, 21 janúar 2008 ) |
| < Fyrri | Næst > |
|---|



Hægt er að setja hvaða mynd sem er á hliðar teningsins, nota þá myndir úr Boardmaker eða Clicker. Mjög auðvelt er að versla kennslugögn á vef Synergy Learning, en svo er líka Skólavörubúðin með eitthvað af vörum frá þeim.
ugögn fyrir hreyfihömluð börn. Mjög gaman að flakka um vef þeirra og mikið úrval hjá þeim af rofaboxum, rofum og allskonar skemmtilegum leikföngum sem hreyfihömluð börn geta stjórnað með rofum. Hér til hliðar er einmitt mynd af Go Talk One sem ég verslaði. 

