Atburðir

Það eru engir atburðir skráðir

Dagatal

september 2010
sunmánþrimiðfimföslau
01020304
05060708091011
12131415161718
19202122232425
2627282930
Opnar lausnir í leikskólastarfi PDF Prenta Senda
Höfundur: Fjola Thorvaldsdottir   
mánudagur, 10 september 2007

Í mars s.l. var tekin sú ákvörðun í leikskólanum Furugrund í Kópavogi að takast á hendur þróunarverkefni þar sem megin áhersla væri lögð á náttúruvísindi og upplýsingatækni. Verkefnið fékk nafnið "Dalurinn okkar- Fossvogur". Sótt var um styrki til verkefnisins til bæjarfélagsins og Menntamálaráðuneytis.
Ég var svo heppin að vera ráðin verkefnisstjóri og hef starfað sem slíkur frá því 1.maí s.l. Ég ætlaði ekki að fjalla um þróunarverkefnið hér efnislega því hægt er að kynna sér það á heimasíðu leikskólans.

Um svipað leiti og ákvörðunin um verkefnið var tekin kom í ljós að það væri ætlun bæjarfélagsins að breyta uppsetningu heimasíðna leikskólanna í bænum. Ákveðið var að nota opinn hugbúnað Joomla sem er sá sami og ég nota fyrir þessa heimasíðu. Þegar ég fór svo að vinna við síðu Furugrundar fannst mér tilvalið að gagna lengra í notkun opins og frjáls hugbúnaðar.

Ég hafði áður í tengslum við nám mitt í KHÍ prófað margskonar opinn hugbúnað og einnig kynnt mér nýjungar sem fram hafa komið á s.l. þremur árum. Það má segja að sífellt er að koma fram á veraldarvefnum hugbúnaður sem hentar bara mjög vel til notkunnar í leikskólastarfi.
Samkvæmt könnun sem ég gerði haustið 2004 og aftur 2006 hafa foreldrar og þeir sem skoða heimasíðu Furugrundar mestan áhuga á ljósmyndum og umfjöllun um innrastarf leikskólans. Til þess að mæta óskum neytenda okkar höfum við verið dugleg að setja myndir á (gömlu) heimsíðuna, en vegna takmarkaðs pláss á þeirri nýju höfum við núna ákveðið að nýta opin hugbúnað að mestu leiti. Við gerum þetta einnig til þess að auðvelda okkur birtingu á þeim verkefnum sem við erum að vinna að með börnunum. Þegar við notum svæðin krækjum við frá heimasíðunni okkar yfir á viðkomandi svæði.

http://www.slideshare.net/Furugrund
Þetta er vefsvæði þar sem hægt er með auðveldum hætti að setja inn kynningar á verkefnum sem gerð eru með PowerPoint. Nýverið var opnaður sá möguleiki að setja inn kynningar með tali og það er sá möguleiki sem við sækjumst eftir. 

http://voicethread.com/
Þarna getum við hjálpað börnunum að setja inn myndir og svo geta þau talað inn á þær. Skemmtilegt verkfæri sem gaman verður að prófa með börnunum.
Hér er okkar fyrsta tilraun með þetta verkfæri, þarna setjum við inn texta, en fljótlega byrjum við á að gera verkefni þar sem nokkur börn setja inn eigin myndir og skýra frá þeim.

Vinsælasta videoploggsvæðið á veraldarvefnum er YouTube. Við höfum hug á að börnin taki nokkuð mikið af myndupptökum á nýju fínu barnamyndupptökuvélarnar. Við ætlum okkur að nota þetta ókeypis svæði til þess að koma myndbrotunum á framfæri. Okkar fyrsta myndbrot er komið á veraldarvefinn, það er reyndar hljóðlaust, en fljótlega bætast fleiri við með hljóði. Lítið á.

Við höfum einnig undanfarin ár notað margskonar opinn hugbúnað til þess að geyma myndirnar okkar. Til eru ljósmyndavefir eins og Picturetrail, Flickr og margir fleiri. Þetta eru dæmi um opinn hugbúnað sem mjög auðvelt að nota. Hér eru Leiðbeiningar fyrir Flicker á íslensku sem Salvör bjó til. Forritið Photostory er hægt að sækja á heimasíðu Microsoft ókeypis. Hér er dæmi um notkun forritsins. Leiðbeiningar fyrir þessi forrit eru hér 
Sjálf hef ég svo notað mikið fyrir fjölskyldumyndirnar opin hugbúnað sem heitir Tabblo og finnst hann alveg ferlega skemmtilegur og mæli hiklaust með honum fyrir leikskóla. Hér er dæmi.  PhotoShow er hugbúnaður sem er á veraldarvefnum sem bæði krökkum og fullorðnum finnst gaman að leika með.
Allir þessir vefir bjóða einnig upp á þann möguleika að hafa myndirnar ekki sýnilegar nema fyrir útvalda og er þá einfaldlega sent lykilorð til þeirra sem fá að skoða.

Hér hef ég stiklað á því helsta sem mér datt í hug varðandi opinn hugbúnað í leikskólastarfi og vona að ég hafi vakið áhuga ykkar leikskólakennarar. Að mínu mati er opinn hugbúnaður yfirleitt mjög einfaldur í notkun og engin ástæða til annars en allir geti notað hann og þarf ekki sérfræðikunnáttu til. Látið bara vaða.... Áfram leikskólakennarar!!


Síðast uppfærð ( mánudagur, 10 september 2007 )
 
< Fyrri   Næst >